Davíðshús

Bjarkarstíg 6, Akureyri

Heimili og bókasafn Davíðs Stefánssonar,
skálds frá Fagraskógi, (1895 –1964),
eins og hann skildi við það.

Umsjón með safninu í Davíðshúsi hefur Minjasafnið á Akureyri.
Sími 462-4162

 

 

 

 

 

 


Gestaíbúð er á neðri hæð húss skáldsins frá Fagraskógi að Bjarkarstíg 6, Akureyri. Íbúðin er ætluð rithöfundum og fræðimönnum til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi, hámark einn mánuð í senn.

Í íbúðinni eru: svefnherbergi, stofa, skrifstofuherbergi, eldhús og baðherbergi. Allur almennur húsbúnaður og lín er til staðar í íbúðinni, ásamt þráðlausri nettengingu.

Umsjón með gestaíbúðinni hefur Amtsbókasafnið á Akureyri (umsjónarmaður er Doddi - Þorsteinn G. Jónsson).
Sími 460-1250 (gsm: 846-0491)

 
 

 

Davíðshús

forsíða